26. september 2008 klukkan 19:59
Hæ hó og korriró
Bara að láta vita að það er komin ný mynd á myndasíðuna. Ég myndaðist við að flísaleggja á síðustu helgi en á eftir að setja sílikon, það var ekki til í réttum lit en ætla að kíkja við á morgun og athuga hvort það sé komið. Annars er lítið að frétta. Ég missti 2 daga úr skólanum í þessari viku vegna magapínu og ýmsu sem því fylgir en er nú orðin hressari og er að vinna eins og béstífa. Var á morgunvakt í morgun og er svo að fara á næturvakt á eftir. Svo er ég bossinn þangað til á sunnudaginn, því stýrurnar skruppu til Köben á fyllerí (sko innkaupafyllerí, veit ekki um hitt). Ég get rétt ímyndað mér að það sé stutt í að það kvikni í kortunum þeirra vegna ofnotkunar hehe.
Annars er stutt í að ég fari að læsa síðunni, geri það þegar ég hef meira krassandi fréttir og hver veit nema það fari að koma að því ;)
En þangað til,
Knús og kossar
Rúna
Rúna
26. september 2008 klukkan 19:54
Rúna
16. september 2008 klukkan 22:32
Jæja, nú ætla ég að gefa mér smá tíma til að blogga. Skólinn er byrjaður og hann hefur haft forgang, svo að ýmislegt annað hefur setið á hakanum, s.s. að klára innréttinguna, en það sem er eftir er að setja sökkulinn, tengja viftuna og ljós undir skápunum og síðast en ekki síst að flísaleggja milli borðs og skápa, sem ég ætla að spreyta mig á sjálf. Ég er búin að skella inn nokkrum myndum á flickr síðuna mína, það er hlekkur á hana hérna vinstra megin, þar sem stendur ,,Myndasíðan mín" og þar getið þið séð þetta í þróun.
Ég fór með drusluna mína í skoðun í gær og krossaði fingur, en hún fékk fulla skoðun blessunin og ég þurfti ekki að ýta henni út eins og sumir hehe.
Ég held annars uppteknum hætti frá í fyrra og ferðast með strætó í skólann og það er það að frétta af Glanna glæp sem ég skrifaði um í fyrra að hann er enn að keyra strætó, en er orðinn öllu rólegri og yfirvegaðri en hann er einn af mjög fáum vagnstjórum sem heilsa alltaf brosandi.
Jæja, ég læt þetta nægja að sinni og ætla að fara að koma mér í háttinn.
Rúna