Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Rúna
  • Atvinna: Stuðningsfulltrúi
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi
  • Um mig: Skólastelpa með meiru.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Never Expected To See This On The Highway Funny Images, On a Roller Coaster Funny Images, Batman Funny Images, Proud to be Fat Funny Images, Vegan Hunter Funny Images, World?s Tallest Man Meets World?s Shortest Man

Leit

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Ekki dauð enn

23. október 2007 klukkan 20:10

Hæ hæ
Það er búið að vera mikið að gera hjá minni, endalaust af verkefnum og mikill lestur.
Ég er búin að fá þrjár einkunnir, tvær níur og eina áttu.  Ekki amalegt það Svalur
Ég fékk 9 fyrir upplestur úr fagurbókmenntum  (með leikrænni tjáningu) og ritgerð sem ég gerði í þroskasálfræði í félagi við aðra konu.  Svo fékk ég 8 fyrir tillöguræðu.  Svo fer ég að fara í vettvangsheimsóknir og taka viðtöl við fatlaðan mann um líf hans og aðstæður.  Það er mjög spennandi einstaklingsverkefni.   Svo er eitt verkefni í Þroskasálfræði eftir, það er að taka viðtal við ungling, fatlaðan eða ófatlaðan, skrifa um það ritgerð og tengja við fræðilegan grunn og það er í félagi við annan nemanda.
Hóperindi um samskipti er verkefni sem ég er að vinna í með 2 öðrum, við eigum að flytja það sem Power point fyrirlestur á fimmtudag eða föstudag.  Það er bara eitt vandamál varðandi það og það er að 2/3 af hópnum eru veikar.  Ég er sú eina sem stend ennþá og er nú ekkert rosalega hress, með magapínu og ógleði (það er að ganga æló)

Ég keypti mér tvenna skó í gær, fyrir peninginn sem frúin í Hamborg gaf mér (endurgreiðslu skólagjalda frá SFR) Já, ég bara fór að bruðla og keypti mér Gabor leðurstígvéli sem ég var búin að láta mig dreyma um í marga, marga mánuði.  Svo keypt ég mér líka gullskó við gullkjólinn minn, sem ég ætla að fara í á árshátíð 10. nóv. Ég ætla nú ekki að gefa upp hvað herlegheitin kostuðu, en ég á þetta alveg skilið, þar sem ég hef ekki keypt mér skó í áraraðir.

Ein strætósaga í lokin Hlæjandi
Í gærmorgun var ég í sexunni, á leið niður Ártúnsbrekkuna og það var mikil og hæg umferð.  Vagnstjórinn tók á það ráð að fara út í kant og fara fram úr röðinni þannig, þangað til hann þurfti að fara aftur inn á akreinina.  Þetta sá lögga á mótorhjóli og þegar strætó var kominn aftur inn á akreinina, keyrði löggan upp að honum og vagnstjórinn skrúfaði niður rúðuna og heilsaði löggunni kumpánlega. Þeir voru báðir á ferð (mjög hægri ferð) en allavega, þá fór löggan að húðskamma vagnstjórann fyrir að fara út í kant og bruna framúr, þannig að allir í vagninum heyrðu, og sagði að hann hefði ekkert leyfi til að gera þetta.  Ég gat ekki annað en brosað að þessari óvenjulegu aðferð hjá löggunni, að húðskamma strætisvagnstjóra á ferð.