02. júní 2007 klukkan 19:22
Rúna
23. maí 2007 klukkan 16:19
Ég lenti á eftir tveimur bílum á Vesturlandsveginum, sem báðir óku á vinstri akrein, báðir með stefnuljós til hægri, en hvorugur skipti um akrein, heldur keyrðu bara á vinstri akrein með stefnuljós til hægri. Hmmmm, skyldi þetta vera í tísku? hugsaði ég. Svona óku þeir heillengi, þar til þeir fóru í hringtorg og þá slökknaði á stefnuljósunum hjá þeim. Ég velti þessu soldið fyrir mér, hvað þetta ætti eiginlega að fyrirstilla, var jafnvel að hugsa um að flauta á þá, en það hefði nú verið talinn argasti dónaskapur og frekja af minni hálfu að skipta mér af ljósasýningu þeirra. Svo komst ég að niðurstöðu um hvað þeim gekk til: Þeir voru að heiðra Vinstri - Hægri ríkisstjórnina. Hafa sennilega verið að koma frá Þingvöllum, hvar stjórnarsáttmálinn var kynntur.
Rúna
17. maí 2007 klukkan 13:47
Við fórum nokkrar vinkonur á tónleikana með Josh Groban í gærkvöldi. Já, þessa líka dýru tónleika, en þeir voru sko hverrar krónu virði. Ég ætlaði nú varla að tíma, en þar sem ég var búin að vinna svo mikið á þessu ári, þá fannst mér ég alveg eiga það skilið. Hann Josh Groban var bara æði og ótrúlegt að svona stór rödd komi úr svona litlum búk. Raddsviðið er alveg frá bassa upp í falsettu og ræður hann mjög vel við alla tóna. Svo reytti hann af sér brandarana þess á milli. Eitt sem hann sagði vakti mikla lukku: "karlmennirnir sem eru hér, eru hérna vegna þess að þeir elska konuna sem þeir sitja við hliðina á. Þakka ykkur kærlega fyrir að koma" Hann semsagt gerir ráð fyrir að aðeins konur fíli hann, en kallarnir komi með bara af því að þeir elski konurnar. Svo lentum við vinkonurnar í myndatöku fyrir eitthvað blað, en gleymdum að spyrja hvaða blað
.
Týpískt fyrir mína "heppni" þá kom Josh Groban mjög nálægt okkur og var í seilingarfjarlægð í spotlighti og ég ætlaði sko að taka mynd á símann minn, en þá kom "minni fullt" og ég gat ekki tekið mynd og svo var hann auðvitað farinn þegar ég var búin að búa til pláss. Mikið svakalega var ég svekkt
Svo ætluðum við að fara á kaffihús niðri í bæ á eftir, en viti menn, það var allstaðar fullt niðri í miðbæ, svo við bara dröttuðumst heim.
Rúna
12. maí 2007 klukkan 16:48
Jæja, þá er ég búin að skila x-inu mínu og vonandi á réttan stað. Það fór ekki á sama stað og síðast, en sá flokkur sem ég kaus síðast olli mér miklum vonbrigðum á því kjörtímabili. En ég á svosem ekki von á að mikið breytist.
Ég er með gríðarlegar harðsperrur í maganum, marbletti á hnjánum og rassinum og kannski á fleiri stöðum... eftir hvað? Jú ég fór á skauta í gær ásamt samstarfskonum mínum. Auðvitað þurfti ég aðeins að sópa svellið, fyrst með rassinum og svo með maganum. En það var sko ekki klaufaskapur, nei auðvitað ekki. Svellið var bara óslípað og fullt af ójöfnum í því, svo þið skuluð ekki voga ykkur að segja að ég sé klaufi, HA! 
Svo var farið og grillað og etinn mjög ljúffengur matur og skrafað og hlegið og svo kom spákona til að spá fyrir okkur, einni í einu. Ég hef alltaf verið mjög skeptísk á svona spákonur og miðla, en það var nú eitthvað smá vit í þessari, en það stóðst nú ekki allt sem hún sagði. Ég ætla nú ekki að fara nánar út í það.
Svo er það Júrógeim í kvöld, enginn Eiríkur, en það verður að hafa það.
Rúna
04. maí 2007 klukkan 13:07
Ég settist niður í gærkvöldi til að horfa á sjónvarpið, því ég var andvaka eftir mikinn svefn undanfarna daga, þ.m.t. í gær. Fiskabúrið er við hliðina á sjónvarpinu og þegar ég stóð upp áttaði ég mig á því að ég hafði minnst horft á sjónvarpið heldur skemmti ég mér konunglega yfir fiskabúrinu með tónlistina úr sjónvarpinu (American Idol) til að undirstrika skemmtunina. Þarna voru Gullbarbarnir mínir sex óvenjulega samstíga, syntu fram og aftur við framhliðina á búrinu og ef einn ákvað að snúa við, þá fylgdu hinir á eftir. venjulega var synt endanna á milli og var ég farin að halda að þetta væri keppni í 800 cm. sundi en keppnin var mjög jöfn. Já, þá var ég farin að horfa á íþróttir fiska.
Svo var þarna smá bardagi milli þriggja Perlugúrama. Ég fór út úr dýrabúðinni í þeirri trú að ég hefði keypt tvo karla og eina kerlingu, ætlaði að leyfa þeim að parast og skila svo einum karli til baka. En ég er nú bara alveg viss um að ég er með þrjár kerlingar,af útlitslegum ástæðum og vegna þess að í kvöld voru þær að hnakkrífast. Það skrítna var að það var eins og þær væru að berjast með þessum löngu mjóu uggum sem þær hafa og þá var ég farin að horfa á box eða Glæstar vonir, það eru alltaf einhverjar kellingar að rífast þar og otandi puttum hver að annarri . Það var ekki eins og tveir karlar væru að rífast um kerlinguna heldur skiptust þeir á að slást innbyrðist, þannig að allir fiskarnir slógust við hvern annan en samt bara tveir í einu. Þeir róuðust þegar ég slökkti ljósið hjá þeim og það hefur verið allt til friðs síðan ég kveikti í morgun.
Svo er spurningin. Ætti ég ekki bara að selja sjónvarpið og fá mér fleiri fiskabúr, þar sem þau ræna jú athygli minni frá sjónvarpinu hvort eð er.
Rúna
03. maí 2007 klukkan 17:22
Ég ligg eins og slytti, fer þó öðru hvoru framúr og sest upp til að fá ekki í bakið. Er búin að vera með hita, háls/nefkirtlabólgu, kvef og hósta, eyrnaverki, beinverki hausverk og ofan á allt saman var ég fyrsta daginn með gullfoss líka ef þið vitið hvað ég meina. Er semsagt búin að liggja í einhverri flensu síðan á mánudaginn. Var nú eitthvað byrjuð að slappast á sunnudaginn en þegar ég vaknaði á mánudaginn, fann ég engan kraft til að fara fram úr rúminu. Það var eins og valtari hefði keyrt yfir mig. Ég er nú farin að hressast en er ekki nógu hress til að fara í vinnuna. Ég er enn með nokkrar kommur. Ég hef slæma reynslu af því að vera að æða af stað eftir veikindi, þegar ég var í framhaldsskóla þá fór ég of snemma í skólann eftir flensu og mér sló niður og ég lá í 1 1/2 viku í viðbót og varð miklu veikari en í fyrra skiptið. Þannig að ég er ekkert að drífa mig í vinnu þó ég sé bara með nokkrar kommur. Hitalaus skal ég vera. Held líka að það sé betra að vera einum deginum lengur frá vinnu en að taka áhættu á því að vera kannski viku í viðbót. En mikið er þetta grútleiðinlegt. Ég öfunda fólkið sem er úti í garði að vinna, ég sakna vinnunnar (já ég er í þannig vinnu) og þótt ég eigi mjög gott rúm með rafmagnsbotnum og Tempur dýnum frá Nasa þá er leiðinlegt að liggja í því til lengdar. Ef ég verð hitalaus á morgun, þá ætla ég að harka af mér og fara í vinnuna.
Rúna
22. apríl 2007 klukkan 16:21
Ég hef gert grín að (eða hneykslast á) öðru fólki fyrir að vera flautukellingar/karlar. Hef alltaf verið að tala um stressið í umferðinni hérna á höfuðborgarsvæðinu þegar fólk leggst á flautuna. Hef m.a. gert grín að góðum vini mínum sem er soldið duglegur á flautunni
. En upp á síðkastið hef ég komist að því að ég er nú að verða svolítil flautukelling sjálf. Ég notaði nú flautuna rétt áðan þegar það var svínað fyrir mig, rétt fyrir framan mig og bíllinn sveigði inn á hálfa akreinina sem ég var á og var svo hálfur á hinni og sveigði svo aftur alveg inn á hina. Það var ekkert verið að athuga hvort einhverjir bílar væru á næstu akrein, nei nei, þolinmæðin var ekki svo mikil. Hann var að fara framúr bílum sem voru að bíða eftir að komast að á afrein. Ég hef undanfarið notað flautuna soldið á svona pésa. Maður á að láta vita að maður er ekki sáttur við svona framkomu í umferðinni. En hitt er annað mál að mér finnst alger óþarfi þegar fólk er byrjað að leggjast á flautuna ef maður er ekki kominn af stað um leið og gula ljósið kemur eða ef maður er að fara eftir lögum og gefa forgang í hringtorgi. Þess háttar flautubrjálæðingar fara hrikalega í taugarnar á mér.
Rúna
19. apríl 2007 klukkan 09:17
Jæja, nú er sumarið gengið í garð með góðu gluggaveðri, það er soldið kalt úti, en við fyrirgefum það alveg, er það ekki? Allavega þá frusu vetur og sumar saman sem á að boða gott sumar. Ég var að koma af næturvakt og það var rosalega fallegt þegar sólin var að koma upp og fuglarnir byrjuðu að syngja. Hefði viljað vera með myndavélina. Ég ætla að reyna að sofa sem minnst í dag, er í fríi og svo byrjar helgartörnin með kvöld og dagvöktum. Mig langar í bíó í kvöld kl. 8, á myndina Tímamót í Háskólabíói. Hún verður aðeins sýnd þessa helgi. Vill einhver koma með mér? Plíííííís!!!
Rúna
18. apríl 2007 klukkan 20:01
Jæja nú eru fiskarnir komnir á sinn stað og ég er bara ánægð með árangurinn. Gullfiskarnir taka sig miklu betur út í 54 l. búrinu, þar sem þar er ljós sandur og þar sem þeir eru frekar dökkir þá runnu þeir soldið saman við umhverfið í stóra búrinu. En aftur á móti koma litirnir á hinum fiskunum betur fram í stóra búrinu með dökku mölinni. Svo ætla ég að kaupa fleiri fiska eftir helgi. Er að fara að setja myndir af búrunum í myndaalbúmið.
Rúna
17. apríl 2007 klukkan 10:14
Rúna