Hann Maggi minn
17. október 2008 klukkan 13:32

Þetta er hann Maggi minn. Við erum búin að þekkjast í 3 vikur og þar af búin að vera saman í 2 vikur. Þetta er ósköp nýtt samband en ég hef góða tilfinningu fyrir því. Við erum nánast óaðskiljanleg.... æ það er svo gaman að tilhugalífinu. Svo yndislegur tími. Hann er líka yndislegur strákur. Hann er alveg að verða 31 árs, bara fjórum árum yngri en ég. Það er bara fínt, ekki svo mikið þegar maður er kominn á þennan aldur. Ég var svolítið hrædd við að fara í samband á þessu tímabili í lífinu, af því að ég er í skóla, en hann sýnir náminu fullan skilning og sér til þess að ég sé ekkert að slugsa. Það er ágætt að hafa einhvern til að halda sér við efnið.
Ég hef líka lært að meta ýmsa hluti í lífinu sem ég hef ekki alltaf verið jafn hrifin af. T.d. finnst mér yndislegt að vakna við hroturnar í honum við hliðina á mér. Það minnir mig á að ég er ekki ein lengur. Ég hef hann við hliðina á mér í hverju sem er og hann hefur mig. Hann er líka duglegur að fara með mér út að labba á kvöldin, það er svo yndislegt að labba saman þegar allt er komið í ró, jafnvel í rigningu. Við höfum bæði gott af þessari hreyfingu, eins og allir reyndar.
Maggi minn er líka rómantískur. Við fórum einn daginn í Smáralindina og þegar við komum þangað inn, þá þurfti ég að skreppa á klósettið. Þegar ég kom út, stóð hann með rós í hendi og gaf mér og ég labbaði með honum alla Smáralindina með rós í hendi. Svakalega krúttlegt.
Jæja ég ætla að halda áfram að lesa undir próf.
Ég vil biðja ykkur um, sem hafið fengið lykilorð á síðuna að láta mig vita ef þið gefið einhverum öðrum það upp og þá hverjum. Það er ekkert bannað að segja frá því, ég vil bara vita hverjir eru að lesa þetta pár mitt. (Bara pjúra forvitni)
Rúna









Kv. Ingv. Hera